Sarpur fyrir ágúst, 2008

Aðlögunardagar í Addis Abeba

Posted in Uncategorized on ágúst 21, 2008 by siggaiafriku

Við erum samtals sex sjálfboðaliðar hérna í Addis núna en við verðum allar á mismunandi stöðum í landinu eftir nokkrar vikur. Við höfum verið saman í aðlögun síðan að við komum til landsins. Hérna eru Åshild (norsk), Ruth (norks), Sara (finnsk) og Solveig (norsk) að gæða sér á þjóðarréttinum injerra wott.. yndislegur matur!

Í Afríku reynir maður að nýta hlutina vel.. þessi bygging er á Norsku skólalóðinni í Addis og þetta er semsagt kapellan og íþróttahúsið!

Við Norska skólann

Seint í gærkveldi komu Helga Vilborg, Kristján og fjölskylda hingað til Addis en við náðum ekki að hittast neitt allmennilega fyrr en í dag. Margrét Helga, Jóel og Dagbjartur Elí hafa stækkað heil mikið á þessu eina og hálfa ári sem er liðið síðan síðast þegar ég sá þau. Þau eru rosalega dugleg í tungumálum og Margrét Helga reyndi að kenna mér nokkur orð í amharísku í kvöld. Hún reyndi að kenna mér réttan framburð á orðinu “tiru” og fannst mjög mikilvægt að ég segði það rétt. Ég spurði afhverju og þá svaraði hún mér að það væri svo “cool” að segja það rétt :) . Ég fékk líka að hitta Davíð Ómar í fyrsta skyptið og hann er búinn að læra að labba, en hann hefur verið svolitið slappur síðan að fjölskyldan lagði af stað frá Weyto.

Margrét Helga og Jóel verða í fjarnámi við Bingham í vetur og í fyrra málið förum við sjálfboðaliðarnir þangað til að kynna okkur skólann. Ég og Helga Vilborg munum skypta kennslunni og einhverjum heimilisstörfum á milli okkar í vetur. Þetta er allt saman mjög spennandi en það tekur líka tíma að komast inn í kerfið svo við verðum nokkrar vikur áfram hérna í Addis áður en að við förum suður til Weyto. 

 

Allt hefur gengið vel:)

Posted in Uncategorized on ágúst 19, 2008 by siggaiafriku

Ferðin gekk betur en ég bjóst við! Í fyrra þurftum við að bíða í rúmar tvær klukkustundir áður en við komumst inn í landið, en í þetta skyptið gekk ég eginlega bara beina leið inn án nokkurra vandamála.

Þegar ég lenti beið Torill (norskur kristniboði hérna í Addis Abeba) eftir mér með íslenska fánann í hendinni. Hún keyrði mig beint að norska skólanum þar sem ég mun búa í rúmar tvær vikur. Það var búið að búa um fyrir mig í herbergi á norska skólanum og þar beið mín líka kort og fallegt blóm í vasa.. ég naut þess að getað sofið út í dag (til 13:30 að staðar tíma)

Ég keypti litla ódýra regnhlíf fyrir sunnan í von um að hún gæti nýst mér hérna í Eþjópíu. Þegar ég horfi út um gluggan og sé rigninguna steypast niður á jörðina og heyri í þrumum og eldingum er ég hins vegar viss um að hún hafi verið léleg kaup. Það dynur í öllu húsinu þegar rigningin steypist niður á þakið.

Í kvöld fer ég með Torill aftur á flugvöllin til þess að sækja Solveig (bekkjarsystur mína frá Fjellhaug) og tvær aðrar norskar stelpur sem eru að koma hingað í sama tilgangi og ég. Við verðum allar á mismunandi stöðum í landinu en fáum svipuð verkefni í hendurnar

Orð Dagsins:

10Þetta er kærleikurinn: Ekki að við elskuðum Guð heldur að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir okkar. 1.Joh.4:10

Kveðja Sigga

Bless í bili..

Posted in Uncategorized on ágúst 18, 2008 by siggaiafriku

Jæja þá er komin tími til að ég skrifi smá blogg.. eða kanski alveg vitlaus tími..

Ég þarf að fara í háttin af því að ég er að fara af stað til Eþjópíu í nótt eftir ca þrjá tíma.

Tíminn hefur liðið alveg óskaplega hratt síðan ég fékk að vita að ég ætti að fá að fara, ég hef hlakkað til alveg síðan. Ég lendi á mánudagsnótt í Addis Abeba höfuðborg Eþjópíu og þar bíður mín vonandi einhver til þess að fara svo á DNS (Norska skólann í Addis). Ég verð þar í nokkra daga þangað til ég held áfram ferðinni til Voito…

Góða nótt, ég læt í mér heyra þegar ég er lent

kveðja Sigga