Allt hefur gengið vel:)

Ferðin gekk betur en ég bjóst við! Í fyrra þurftum við að bíða í rúmar tvær klukkustundir áður en við komumst inn í landið, en í þetta skyptið gekk ég eginlega bara beina leið inn án nokkurra vandamála.

Þegar ég lenti beið Torill (norskur kristniboði hérna í Addis Abeba) eftir mér með íslenska fánann í hendinni. Hún keyrði mig beint að norska skólanum þar sem ég mun búa í rúmar tvær vikur. Það var búið að búa um fyrir mig í herbergi á norska skólanum og þar beið mín líka kort og fallegt blóm í vasa.. ég naut þess að getað sofið út í dag (til 13:30 að staðar tíma)

Ég keypti litla ódýra regnhlíf fyrir sunnan í von um að hún gæti nýst mér hérna í Eþjópíu. Þegar ég horfi út um gluggan og sé rigninguna steypast niður á jörðina og heyri í þrumum og eldingum er ég hins vegar viss um að hún hafi verið léleg kaup. Það dynur í öllu húsinu þegar rigningin steypist niður á þakið.

Í kvöld fer ég með Torill aftur á flugvöllin til þess að sækja Solveig (bekkjarsystur mína frá Fjellhaug) og tvær aðrar norskar stelpur sem eru að koma hingað í sama tilgangi og ég. Við verðum allar á mismunandi stöðum í landinu en fáum svipuð verkefni í hendurnar

Orð Dagsins:

10Þetta er kærleikurinn: Ekki að við elskuðum Guð heldur að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir okkar. 1.Joh.4:10

Kveðja Sigga

Skildu eftir svar