Enginn dagur er eins

Núna eru rúmlega þrjár vikur liðnar síðan ég kom til Eþjópíu og mér fynnst ég fremur hafa verið hérna í þrá mánuði! Ég er þegar búin að lyggja í fjóra daga með magaveiki, búin að fá heilahrysting og lent í ýmsu “óvenjulegu” hérna í Addis.

frá mán-föst fer ég með Jóel í skólann (Bingham-amerískur skóli) og þýði fyrir hann enskuna yfir á íslensku. Leiðin að skólanum liggur í gegnum Markato (stærsta útimarkaði í Afríku) og ég horfi spennt út um gluggan alla leiðina því að enginn dagur er eins, og flestir eru mjög áhugaverðir! Það er mikið um betlara og vasaþjófa þannig að við höfum alla glugga lokaða og yfirleitt allar dyr læstar á skólarútunni. Fyrir nokkrum dögum síðan var einn af norsku strákonum ekki nógu varkár þar sem hann hafði litla rifu á glugganum og fylgdist ekki nógu vel með þegar að vasaþjófur læddist upp að rúðunni og smeygði hendinni inn um gluggan og kyppti nestisboksi stráksins með sér. Á fimmtudaginn síðastliðinn tók leiðin okkur klukkustund sem tekur okkur yfirleitt 25 mín, af því að hluti af leiðinni var lokuð vegna sprengingar kvöldsins áður. Fjórir létust.

Ramadan er byrjuð og hún veldur svefnleysi af því að það eru hátalarar í grennd við norksu skólalóðina og múslimarnir byrja mjög snemma á morgnana með bænaköllin. Ég fékk Eþjópíska ökuskírteinið mitt síðastliðinn föstudag og fór strax út að keyra en ég lenti einmitt á þeim tíma sem að múslimarnir biðja og þeir gera það á miðri götunni, þessvegna var mjög erfitt að komast áfram..

Á mánudaginn höldum við Helga Vilborg, Kristján og börn suður til Weyto. Regntíminn þar á að byrja eftir viku og Kristján segir að ástandið sé mjög slæmt úr því að stóri rigningartíminn sem að átti að koma í maj-júní kom ekki. Allt er skrallþurrt þar núna og við biðjum fyrir regni.

Við ætlum að reyna að fá einhvern kennara til þess að kenna okkur Tsemai (tungumálið sem þjóðflokkurinn Tsemai talar) þegar við komum niðureftir. Ég hlakka mikið til og bið að allt megi ganga vel!

Ég hef það mjög gott og mér líður vel! Ég bið að heilsa frá Eþjópíu!:)

“Með hjartanu er trúað til réttlætis, með munninum játað til hjálpræðis.” Róm 10,10 

7 svör to “Enginn dagur er eins”

  1. helgakolbeins segir:

    Vá, það eru aldeilis ævintýrin hjá þér Sigga mín. Ég hugsa oft til þín og hvað þú sért að bralla þarn í Afríku svo það er gott að fá fréttir. Guð blessi þig.
    Knús og kram frá Helgu (og Fróða)

  2. Awww. tänk vad du håller på uppleva! Både fantastiskt och svårt! Jag kännde igen den där kännslan att det känns mycket längre en vad det är… men när det börjar att närmast slutet, så kommer det att kännas som tiden har gått allt för fort!
    Saknar dig… jätte mycket, puss puss….Marta

  3. Ásta Bryndís Schram segir:

    Sæl, Sigga mín
    Gaman að lesa bloggið frá þér.
    Vona að þér líði vel í Voito og þú aðlagist fljótt. Við hugsum oft til þín og biðjum Guð að blessa þig. Bestu kveðjur til Helgu og Kristjáns.
    Ásta

  4. Til hamingju með afmælið Sigga. Margrethe og Markús frændi biðja að heilsa þér. Vonandi gengur þér áfram vel í Afró.

  5. solveigsapa segir:

    skjønner ikke så masse av det som står her men.. hva er adressa til den svenske bloggen din? :) savner deg! Håper du koste deg med kaviar!! (håper du har fått den?)

  6. Sigridur, hör av dig!

  7. hæ Sigga mín sæt og fín sem drekkur ekki smjör. ha ha ha.

    Ég er í Noregi og hef það fínt. Hef séð Sakka hér, því hann er með sunnudagskólan og svo sá ég Markús í Damörku.

    Við Helga hittumst oft. Það er gaman. Hún hjálpaði mér að spofan blogg sem þú getu kíkt á ef það er hægt.

    Gangi þér vel þarna úti. Guð blessi þig og varðveiti Sigga mín. Þú ert frábær og ert svo samalega þjón Guðs.

Skildu eftir svar